8 bollar af lífrænu Bókhveitiflögum
3 bollar af cornflakes fæst í heilsuhorninu eða öðrum heilsubúðum.
½ Bolli af spíruðum hörfræum fæst í heilsuhorninu eða öðrum heilsubúðum.(val)
1 bolli af þurkuðum og niðurskornu döðlum
1 bolli af þurkuðum og niðurskornum eplum
1 bolli hakkaðar valhnetur
1 bolli hakkaðar möndlur afhýddar eða kasjúhnetur
2 teskeiðar af kanildufti.
Gott að nota lífræna hrísmjólk eða ab- mjólk með hnetusmoothie
Hnetusmoothie
100 gr kasjúhnetur
1 banani
1 epli
2 mtsk kókosmjöl lífrænt
2 mtsk kókosolía jómfrúar lífræn
3-4 frosin jarðaber
1 lítið glas blandaður lífrænn ávaxtasafi (Ekoland lífrænn blandaður)
5-6 klakar
Ungversk Nautagúllassúpa útfærð á hollann hátt
• 900 gr. nautagúllas• 2 stk. laukar
• 3 stk. hvítlauksrif
• 3 msk. kokosolía lífræn til steikingar (fæst í Heilsuhorninu)
• 1,5 msk. paprikuduft
• 1,5 l vatn
• 2 msk. kjötkraftur eða 2 teningar verður að vera lífrænt (fæst í Heilsuhorninu)
• 1 tsk. kúmenfræ
• 700 gr. sætar kartöflur
• 2-3 stk. gulrætur
• 2 stk. paprikur
• 4-5 stk. tómatar
Aðferð
1. Laukur saxaður, hvítlaukur pressaður, kjötið skorið í bita og allt steikt í olíunni.
2. Paprikuduft, vatn, kjötkraftur, kúmen og meiran sett út í og allt látið sjóða í 40 mínútur.
3. Kartöflurnar eru flysjaðar, gulræturnar bitaðar og bætt út í. Allt er síðan látið malla í 30 mínútur í
lokin.
4. Kryddið með ef þarf..
Glúten- og gerlaust brauð
• 1000 gr Grov mix frá semper (fæst í heilsuhorninu)
• 125 gr graskersfræ / sólþurkaðir tómatar
• 125 gr sólblómafræ
• 125 gr sesamfræ
• 100 gr kókosmjöl
• 5 tsk vínsteinslyftiduft
• 1 tsk sjávarsalt
• 4-5 dl vatn
• 5-6 dl ab mjólk má nota Hrísgrjónamjólk
Aðferð
Blanda öllu þurefninu saman og hræra vel, hita eða velgja vatnið og ab mjólkina saman og hræra svo við þurefnið með sleif.
Hentar best að baka í 50-60 min við 175°
Brauðið fer best í tvö form stór.
Það getur verið gott að taka brauðið
úr forminu ef það er ekki vel bakað eftir 60 min og setja það aftur inni ofn í smástund 10-15 min.
Eftirréttir
Akwadu :
6 miðlungs bananar
1 matskeið smjör
safi úr 2 appelsínum
safi úr 1 sítronu
3 matskeiðar hrásykur lífrænn eða xilytol fæst í heilsubúðum
2/3 bolli bakað kokosmjöl sjá uppskrift
Skerið banana í helmimga og raðið í eldfast mót setjið safana, smjörið, sykurinn og kokosmjölið yfir banana og bakið í ofni við 200 gráður í 10 min.
Berjakokteill fyrir 3-4:
1 askja af jarðaberjum
1 askja af bláberjum
4 matskeiðar af lífrænu kokosmjöli
1 matskeið af fínum lífrænum hrásykri fæst í heilsubúðum
Skerið niður jarðaberin og bláberin blandið saman við kokosmjöli og sykri berið fram í skálar.
Bakað Kókosmjöl :
2 bollar af lífrænu kokosmjöli
½ bolli af maple sýropi
Blandið saman í eldfast mót, dreifið úr í þunnt lag og bakið við 150 gráður þartil mjölið er orðið
þunnt.
Kokoskökur:
4 eggjahvítur
2 bollar bakað kokosmjöl
Blandið saman og setjið í smákökustærð á plötu, bakið við 150 gráður í 20-30 min eða eftir smekk. Varist samt að
hafa þær ekki hráar. Kökurnar ættu að vera mjúkar og aðeins brúnar að utan, hitinn getur breyst eftir því hvaða gerð
ofninn ykkar er.
Davíð special salat : tómatar, laukur, agúrka, svartar ólivur, og avacado.
Bættu út í 2 eggjum og 100-200 g af rækjum.
Gott að setja 2 mtsk af olivíuolíu og kreista eina sítronu út í.
Morgunhristingur :
1 Banani
½ bolli kokosmjólk ekki fituskert
2 eggjarauður
1 teskeið vanilluduft eða extract
1 matskeið maple sírop eða xylitol skoða magn
50 gr kasjúhnetur
2 mtsk Spíruð hörfræ
Orkuhristingur:
Lítill bútur af engiferrót
50 gr sólblómafræ
50 gr kasjúhnetur
1 matskeið af kokosolíu
2 eggjarauður
½ banani
½ epli
2 mtsk kokosmjöl lífrænt
1 lítið glas blandaður lífrænn ávaxtasafi
5-6 klakar
Blandið í 2-3 mín í blandara
Parísarbuff :
500 gr af nautahakki ekki fiturskertu
4 egg lífræn
1 box af spínati
4 matskeiðar af smjöri
1- ½ box af sveppum
Eðalkrydd frá pottagöldrum
Aðferð
Kryddið nautahakkið og búið til fjórar jafstórar bollur, búið til buff og kryddið með eðalkryddi. Steikið spínat og sveppi(sveppina uppúr smjöri). Steikið buffin og eggin, setjið restina af smörinu bráðnuðu yfir buffin og berið fram með spínatinu, sveppunum og eggin ofaná.

