Heildręn Heilsužjįlfun

Hvers vegna Heilsužjįlfun? žjįlfarinn hjįlpar žér aš vinna markvist aš markmišunum svo žś gefist ekki upp. žjįlfarinn styrkir hvötina til betri lķfsstķls

Heildręn Heilsužjįlfun

Hvers vegna Heilsuþjálfun?
þjálfarinn hjálpar þér að vinna markvist að markmiðunum svo þú gefist ekki upp.
þjálfarinn styrkir hvötina til betri lífsstíls sem gefur þér aukið sjálföryggi.
þjálfarinn ráðleggur með mataræði þannig að þú færð styrk til breyta og bæta mataræðið.
Hjá þjálfara færðu mælingar sem segja til um líkamsástand þitt.
Í tíma hjá þjálfarnum hefur þú athygli hans óskerta og hann fylgist með að þú sért að æfa rétt.

Hvaða greiningar fara fram?
Líkamsstöðu-liðleiki
Sjúkrasögu
Matarræði-Lífsstíl
Líkamsgetu-vöðvastyrk
Hreyfifræði
Grunnæfingargetu
Markmið
Jafnvægi
Vöðvajafnvægi

Hverjir nýta sér Heildræna heilsuþjálfun?
Ef erfitt er að hafa sig af stað, þá er þjálfarinn tilbúinn með hvatningarorðinn.
Það er góð fjárfesting í þjálfun, bætt heilsa, betri sjálfsmynd og aukin lífsgæði.
Í þjálfun miðast æfingakerfið við líkamsástand þitt en ekki fjöldans.
Í samráði við þjálfarann eru raunhæf markmið sett.
Allir þeir sem vilja ná enn meiri árangri, bæta líkamsástand sitt, komast í betra form og bæta andlegan líða.

Hvernig vinnur Heildrænn Heilsuþjálfari?
Framkvæmir greiningar á stoðkerfinu
Líkamsstöðu, vöðvajafnvægi, liðleiki, jafnvægi og vöðvavirkni
Skoðar einnig daglegt álag og streytu á vöðva- og hormónakerfi og tilfinningalífi
Semur æfingarkerfi útfrá greiningum, markmiðum og daglegu álagi
Einbeitir sér að því að leiðrétta líkamsstöðu hvers og eins ásamt vöðvajafnvægi, styrk, streytu, liðleika, vöðvavirkni ásamt almennu jafnvægi.
Heildrænn heilsuþjálfari passar uppá að viðkomandi viðskiptavinur sé alltaf að halda réttri líkamsstöðu á líkamanum í gegnum allar æfingar.
Setur streytulosandi æfingar inn í æfingarkerfið þar sem við á.
Gert er teygjukerfi útfrá liðleikamælingum sem liðkar þannig stuttu og stífu vöðva líkamans.
Nær þannig að leiðrétta líkamsstöðu viðskiptavinarins með teygjum og leiðréttandi æfingum.

Hvað er gert í fyrsta tíma?
Í fyrsta tíma þá mæli ég þig upp sem tekur mig um 90 min, mælingarnar eru þannig: Liðleikamælingar til að finna út hvaða teygjur og liðkunaræfingar henta þér? Líkamsstöðugreiningar til þess að vita hvaða æfingar henta þér og svo vöðvatest til þess að athuga hvort kviðvöðvakerfið, mjóbakið og aðrir mikilvægir vöðvar líkamans séu að vinna rétt.
Út frá þessu geri ég æfingar- og teygjukerfi sem hentar þinni líkamsstöðu, vöðvajafnvægi, vöðvastjórnun og liðleika og síðast en ekki síst þínum markmiðum þannig að enginn æfingarkerfi eru eins eða þau eru einstaklings og persónugerð.

Kostir Heilsuþjálfunar?
Bætt líkamsstaða
Betri svefn
Lægri blóðþrýstingur
Minni sykurlöngun
Eykur orku og lífslöngun
Minni líkamsfita
Vöðvamassi eykst sem eykur daglega brennslu okkar á fitu
Minnkar líkur á mjóbaksverkjum ‘’ef viðeigandi æfingar eru framkvæmdar rétt
Minni líkur á sjúkdómum t.d. sykursýki 2

Svęši