Golfţjálfun

Hvađ er Golf Biomechanic-Golfţjálfari? Heildrćn ţjónusta í hćsta gćđaflokki fyrir kylfinga sem óska eftir Meiri kraft í sveifluna (drífa lengra) Hjálp til

Golfţjálfun

Hvað er Golf Biomechanic-Golfþjálfari?
Heildræn þjónusta í hæsta gæðaflokki fyrir kylfinga sem óska eftir
Meiri kraft í sveifluna (drífa lengra)
Hjálp til þess að ná sér af bakmeiðslum eða öðrum almennum golfmeiðslum
Meiðslaforvörnum
Aukinn liðleika fyrir sveifluna
Aukinn vöðvastyrkur
Aukið vöðvajafnvægi
Meiri heildarjafnvægi á líkamanum

Hvernig starfar Golf Biomechanic-Golfþjálfari?

Golfþjálfari liðleikamælir einstaklinginn og gerir fyrir hann liðleika- og æfingakerfi útfrá mælingum

Æfingaferlið skiptist í eftirfarandi þætti
Liðleiki
Vöðvajafnvægi
Hámarka notkun dýpri vöðvakerfa
Styrkur
Sprengikraftur

Hversu algeng eru meiðsl í golfi?
53% karla og 47% kvenna sem spila golf eiga við einhver bakmeiðsl að stríða!
24% karla og 27% kvenna sem spila golf meiðast á olnboga!
40% meiri líkur á bakmeiðslum hjá kylfingi sem stundar aðra íþrótt samhliða!
Tómstundarkylfingur notar 90% af hámarksstyrk í hverri golfsveiflu!

Hvers vegna eru meiðsli svona algeng í Golfi?
Kylfingar eru íþróttamenn og þeir þurfa sérhæfða styrktarþjálfun sem tekur mið af þörfum þeirra, líkamsástandi og líkamsuppbyggingu til að ná hámarks árangri og fyrirbyggja meiðsl
Þeir kylfingar í dag sem eru að skara fram úr þakka styrktarþjálfun stórum hluta árangur sinn

Hverjir nýta sér Golfþjálfun?
Allir kylfingar í sama hvaða formi þeir eru í (liðleiki er fyrsta batamerkið)

Hvað er í boði?

6 vikna Hópþjálfun á kylfingum:
Innifalið er liðleikamælingar, teygju- og æfingakerfi og ráðgjöf með mataræði og upphitun fyrir golf. hópþjálfun miðast við að kylfingur mæti 3 sinnum í viku. Og er 4-8 manns saman í tíma.

Einkaþjálfun á kylfingum:

Innifalið er liðleikamælingar, teygju- og æfingakerfi og ráðgjöf með mataræði og upphitun fyrir golf. Einkaþjálfun miðast við að kylfingur mæti 3-4 sinnum í viku. 

1/2 Einkaþjálfun:
Innifalið er liðleikamælingar, teygju- og æfingakerfi og ráðgjöf með mataræði og upphitun fyrir golf. Einkaþjálfun miðast við að kylfingur mæti 2 sinnum í viku og mæti svo sjálfur 1-2 í viku.

Liðleikamælingar:
Kylfingur er liðleikamældur og teygjukerfi er sérsniðið að honum/henni samkvæmt niðurstöðum mælinga. Ráðgjöf með upphitun fyrir golf fylgir einnig.

Umsjón með þjálfun:
Þetta er þjónustan fyrir þá sem vilja æfa sjálfir en fá aðstoð með að semja æfingarkerfin. Boðið er upp á liðleikamælingu, teygju- og æfingarkerfi og ráðgjöf með mataræði og upphitun fyrir golf. Kylfingur fær æfingarkerfi og farið er einu sinni yfir hverja æfingu og teygju. Æfingarkerfi er endurnýjað á 4 til 6 vikna fresti sem fer eftir óskum og líkamsástandi viðskiptavinar.

Fyrirlestrar:
Boðið verður upp á í nánustu framtíð á að halda fyrirlestra hjá golf- og öðrum klúbbum. Fyrirlesturinn er um golf sem íþrótt, mikilvægi liðleikar og styrktarþjálfunnar til að fyrirbyggja meiðsl og auka líkamlega getu til að spila golf og hvernig líkamsþjálfun bætir tæknilega þjálfun.

Svćđi