Greinar

Fjögurra daga víxlmatarræði Þegar ónæmiskerfið þitt er veikt eða uppgefið og þú ert viðkvæmur eða næmur á mat er tvísýnt að nota sömu tegund matar eða

Greinar

Fjögurra daga víxlmatarræði

Þegar ónæmiskerfið þitt er veikt eða uppgefið og þú ert viðkvæmur eða næmur á mat er tvísýnt að nota sömu tegund matar eða mat úr sömu fæðufjölskyldu aftur innan þriggja daga frá því að þú borðaðir hann fyrst. Þetta er vegna þess að varðveitingartími matar er um 55 tímar að fullu eða þar til líkaminn hefur losað sig við allt úr matnum. Þess vegna kemur þú í veg fyrir að ofkeyra ónæmiskerfið aftur og aftur með því að leyfa 72 klukkustundum að líða áður en þú notar mat úr sömu fjölskyldu aftur. Með því að nota víxlmataræðisaðferðina verður líkami þinn heilbrigðari og lítur betur út.

Örbylgjuofnar

Allt sem þú setur inn í örbylgjuofn kemur út steindautt eða án meltingarensíma, vítamína, steinefna og snefilefna. Örbylgjurnar í ofninum skemma frumuhimnuna á þeim matvælum sem þær eru notaðar á. Eyðileggingin verður svo mikil að nemar í þörmunum þekkja ekki matinn sem mat og það veldur ónæmisviðbrögðum. Sum sjúkrahús í Bandaríkjunum hafa bannað örbylgjuofna á barnadeildum. Þeir voru notaðir til að hita upp pela fyrir ungabörn og eru notaðir mikið hér heima á fæðingardeildum, sem er mjög slæmt. Við hitunina í örbylgjuofni eyðileggjast mikilvæg meltingarensím og þess vegna veikir það ónæmiskerfið, ásamt því að rugla skynnemana í þörmunum. Hægt er að framkvæma einfalda rannsókn heima ef ykkur vantar frekari staðfestingu á skaðsemi örbylgjuofna. Takið tvær pottaplöntur sem hafa verið ræktaðar eins og eru í sama ásigkomulagi. Gefið annarri plöntunni vatn úr krananum og hinni vatn sem hefur farið eina mínútu í örbylgjuofn og látið kólna niður. Eftir um níu daga ætti örbylgjuplantan að vera dauð. Þetta er bara vatn, hvað gerist þá með allan matinn okkar? Þegar vatn fer inn í örbylgjuofn eyðileggjast steinefni og önnur snefilefni. Það er minna mál en mörg okkar halda að skella potti á pönnuna og hita rólega upp afgangana eða annan mat.

Fita

Eitt af okkar stærstu vandamálum í dag er fituhræðsla. Það er allt orðið fitusnautt sem við kaupum og í raun þurfum við að leita að fitunni í matvöruverslunum í dag. Eitt af mínum fyrstu skrefum með viðskiptavini mína er að bæta inn hollri fitu til að auka fitubrennsluna.
Þú þarft fitu til að brenna fitu. Ef við erum ekki að fá nægilega mikla fitu hægir líkaminn á fitubrennslunni. Húð, hár og neglur og taugakerfið þarfnast fitu. Fita sér um upptöku og nýtingu A, D, E og K-vítamíns. Fita gerir okkur mettuð (södd). Með fitunni fáum við vörn við innri líffæri og hitaeinangrun. Fita hjálpar til við upptöku á próteinum. Mundu að hafa 25-30% af fitu í hverri máltíð, líka millimáltíð. Samkvæmt manneldisráði eigum við að neyta 25-30% (35%) af heildarorku dagsins.

Mettuð fita

Hlutverk mettaðrar fitu er tengt frumuhimnunni sem á að vera 50% mettuð fita. Mettuð fita hjálpar að setja kalk í beinin, mettaðar fitur eru ákjósanleg orka fyrir hjartað, mettaðar fitur vernda lifrina frá alkóhóli og öðru eitri, lungun og nýrun geta ekki unnið án mettaðrar fitu. Mettuð fita eykur virkni ónæmiskerfisins. Lífsnauðsynlegar fitusýrur vinna með mettuðum fitum.

Lífsnauðsynlegar fitusýrur
Við þurfum lífsnauðsynlegar fitusýrur m.a. fyrir eðlilega starfsemi sjónhimnu, taugaboða í heila, taugavefs og nýrnahetta. Skortur á fitusýrum getur m.a. stafað af einhæfri fæðu eða streitu. Omega-3 og -6 eru fitusýrur sem flokkast hvorar um sig í undirflokka og tilheyra „góða“ fituhópnum. Þær eru hluti af þeim lífsnauðsynlegu fitusýrum sem við þurfum en líkaminn getur ekki framleitt sjálfur. Við þurfum því að gæta þess að fá þær úr fæðunni. Þær er að finna í ýmsum fæðutegundum eins og ólífuolíu,
valhnetum, hörfræjum, lýsi, laxi, túnfiski og makríl svo eitthvað sé nefnt. Omega-3 fitusýrurnar bæta taugavirkni, auka fitubrennslu og styðja við hjarta- og æðakerfið. Góð regla er 6 gr af fiskiolíu á dag.



Framleiðsla á venjulegri matarolíu
Fræin eru pressuð við hátt hitastig, olía ekki vernduð frá súrefni og jafnvel ekki sólarljósi, 9-18% af olíu eftir. Fræ eru lögð í olíuþynni til að ná afgangi af olíu úr fræi. Olíuna þarf að hreinsa með ýmsum aðferðum og efnum (t.d. klór) til að ná olíunni hreinni og lyktarlausri. Hún er meðal annars hituð upp í allt að 270°C í 30-60 mínútur. Og þetta er verið að auglýsa sem hollt fæði! Venjuleg matarolía inniheldur mikið magn af omega-6 sem er einmitt það sem er of mikið af í mataræði okkar.


Svæði