Ævintýrið heldur áfram. Nú eru um 500 manns sem eru komnir af stað eftir handbókinni og árangurinn er alveg meiriháttar -14,3 kg á 45 dögum hjá kvenmanni, vöðvabólga horfin hjá mörgum, sætindaþörfin er horfin hjá nánast öllum, vandamál með bakflæði hafa minnkað og orkan er orðin svo mikil að ég veit ekki hvað ég á að gera við hana. Þetta eru allt ánægðir viðskiptavinir sem hafa farið eftir handbókinni og eru í sambandi við mig. Jafnvel þrjóskasta fita og bjúgmyndun hefur verið að hverfa hjá fólki sem er búið að prófa allt.
Á mínum ellefu ára ferli sem þjálfara hef ég aldrei séð eins frábæran heildarárangur á eins skömmum tíma.
Margir sem er ekki búsettir á akureyri hafa spurt mig hvernig er hægt að fá viðtalstíma hjá þér ef ég bý ekki á akureyri? Ég hef verið með símaviðtal fyrir þá, og þá hringi ég eða hægt að spjalla líka á skype. Svo er best að senda matardagbækurnar rafrænt(tölvupósti)
Ekki hika við að hafa samband ef ykkur vantar upplýsingar varðandi ráðgjöf.
Hér koma ein meðmæli
Þetta mataræði hefur hjálpað mér að byggja upp heilbrigðan lífsstíl og kennt mér að borða upp á nýtt. Ég
var með miklar magabólgur, þindarslit og magasár á byrjunarstigi. Er búin að minnka lyfjaskammtinn, fyrst um helming og nú tek ég nánast
engin lyf. Vöðvabólgan og verkir í liðum eru horfin, sem er ótrúlegt. Ég hef lært að borða réttan mat sem hentar mér og er
bragðgóður. Andleg vellíðan mín hefur tekið stakkaskiptum. Á 6 vikum fóru af mér 14 kíló, 46 sentímetrar og 11% fita.
Ég hef lært á líkama minn og skynja nú hvað er gott og hvað er slæmt fyrir mig.
Guðfinna Árnadóttir, 35 ára starfsmaður Samherja og nemi.

