Lesa śr bókinni

30 daga hreinsun į mataręši   Hvers vegna hreinsun?   Mestöll fęša sem viš boršum er komin mjög langt frį žvķ aš vera nįttśruleg. Viš

Lesa śr bókinni

30 daga hreinsun á mataræði

 

Hvers vegna hreinsun?

 

Mestöll fæða sem við borðum er komin mjög langt frá því að vera náttúruleg. Við borðum verksmiðjuframleitt morgunkorn með viðbættum vítamínum í morgunmat, og gerilsneydda og fitusprengda léttmjólk eða jafnvel undanrennu út á. Í morgunkaffinu borðum við kannski hrökkbrauð með áleggi sem er einnig unnin vara. Oft fáum við okkur skyr í hádeginu (gerilsneytt, fitusprengt og sykurbætt) með samloku (brauð er það sem myndi flokkast sem „ekki matur“, það færir þér ekkert nema orku, enginn vítamín, steinefni og snefilefni), auk þess sem 40-60% okkar eru með glútenóþol að einhverju leyti. Á ég að halda áfram eða hefurðu lesið nóg um „EKKI MATINN“ sem þú ert að borða? Í kaffinu er gjarnan kaffi, kex og bakkelsi – allt þetta er mjög erfitt fyrir líkamann að vinna úr og ekkert af þessari orku stendur með okkur eða veitir okkur stöðuga orku lengur en í 30 mínútur. Hefurðu einhvern tímann hugsað út í það hvers vegna þú geispar alltaf eftir hádegismatinn? Svarið er léleg samsetning á mat. Svo kemur kvöldmaturinn: „Úff, hvað á ég að hafa í matinn? Kannski kjúklingabringur, snarl eða pasta? Ég fékk nú mat í hádeginu og krakkarnir líka! Þetta er röng hugsun. Við þurfum 2-3 „heitar“ málíðir á dag eða máltíðir sem innihalda gott prótein, holla fitu og flókin kolvetni. Við þurfum kjöt, fisk, kjúkling, egg, grænmeti og hollar fitur 2-3svar á dag. Þegar líkami okkar er notaður sem ruslakista þurfum við að taka ærlega til í mataræði okkar bara til að ná upp aukinni orku og andlegri vellíðan. Þú ert það sem þú borðar þegar þú borðar.

 

Hver kannast ekki við þessi einkenni?

 

  • Magakrampi
  • Hausverkir
  • Þunglyndi
  • Sykursýki
  • Orkuleysi
  • Exem
  • Magabólgur
  • Mjóbaksverkir
  • Hár- og húðvandamál
  • Bakflæði
  • Kvíðaköst

 

Allt þetta er hægt að rekja til þess hvað þú ert að borða!

 

Er þetta enn einn kúrinn?

 

Eftir að hafa lifað og hrærst í heimi næringar og líkamsræktar í 12 ár hef ég sennilega prufað flestalla kúra, notað flest þeirra fæðubótarefna sem eru á markaðinum, tekið við ráðum frá misfróðu fólki og svo í seinni tíð mjög fróðu og virtu fólki. Ég hef komist að því að allt þetta virkar, allir þessir kúrar og þessi fæðubótarefni. EN bara í ákveðinn tíma. OG ALLIR KÚRAR TAKA ENDA. Sjálfur var ég mikið fyrir fæðubótarefni, auglýsti skyr og var háður kúrum. Þetta gerði það að verkum að ég er enn í dag, 6 árum síðar með alls kyns mataróþol og þarf mjög að passa mig hvað og hvenær ég borða. Ekki misskilja mig, ég hef það mjög gott í dag og er að borða allt það sem mig langar í. Þess vegna hef ég síðastliðin 6 ár kennt fólki að byggja upp heilbrigðan lífsstíl með því að borða þá fæðu sem hentar hverjum og einum.

Sem barni gekk mér ekkert sérstaklega vel í skóla. Og ef gerðar hefðu verið á mér greiningar þá væri ég pottþétt með athyglisbrest og ofvirkni. En þegar ég fór að taka til í mataræðinu hjá mér fór mér að líða MIKLU betur. Ég hafði allt í einu svo mikla orku, leið betur í maganum og fór úr 100 kg í 89 kg líkamsþyngd á 3 mánuðum einungis með því að breyta mataræðinu.

 

 

Hvers vegna ertu svona sannfærður um að þetta virki fyrir mig?

 

Eftir að hafa prufað alla þessa kúra á þeim 12 árum sem ég hef verið að fræðast um mataræði var tvennt sem virkaði úr þessum kúrum. Að borða holla, heilnæma fæðu og hreinsa unna matvöru úr mataræðinu. Til dæmis er meðal Íslendingur að borða um 60 kg af sykri á ári (ég borða svona 2 kg, hver borðar hin 58 kg fyrir mig?). Ef við skoðum aðeins hvað við erum að borða þá eru það ansi mörg e-efni og önnur efni sem við getum hvorki borið fram né gert okkur grein fyrir hvað það er. Ef þú skilur ekki hvað stendur utan á umbúðunum SKALTU EKKI BORÐA ÞAÐ. Svona til fróðleiks, til að búa til jarðaberjabragðefnið þarf ógrynni af kemískum aukaefnum og nöfnin á efnunum hylja eitt A4 blað með 12 punkta letri.

Við erum í heildina litið að borða mjög óholla og mikið unna matvöru. Hversu mikið af matvörum í matvöruverslunum er ekkert búið að eiga við? Einungis það sem er lífrænt ræktað. En fyrir utan það þá er það ferskt eða frosið grænmeti, ferskir eða frosnir ávextir, óunninn kjötvara, fiskur og eitthvað af kjúklingi (bringur eru saltaðar og sykraðar). Þetta gerir um 20% af allri matvöru sem er seld í stórmörkuðum. En eins og mjólkursamsalan segir: ÞIÐ BÁÐUÐ UM SYKURINN!! Kjaftæði, við lifðum mjög fínu lífi áður en öll þessi unna matvara fór að streyma á markaðinn. Góð regla er að því meira sem það er auglýst, því verra er það fyrir þig.

 

Þú ert það sem þú borðar! Allt sem við borðum breytist í frumur sem endurnýja líkama okkar. Ég myndi ekki vilja hafa auga endurnýjað úr Cheerios.

 

Bara svo þú skiljir mig:

 

·     Holl matvara = hollar frumur = heilbrigður líkami

·     Óholl matvara = óhollar frumur = óheilbrigður líkami

 

Ef þú ert í undirþyngd, yfirþyngd eða með óheilbrigðan líkama, þá hefur þú ekki verið að borða rétta fæðu.



Höfundur: Davíð Kristinsson


Næringar- og lífsstílsþerapisti 

Heildrænn heilsuþjálfari

 

Uppsetning: Bryndís Óskarsdóttir          


Útgefandi: Heilsuþjálfun ehf. Akureyri, 2009

 

Öll réttindi áskilin

 

Bók þessa má eigi afrita með neinum hætti,

svo sem ljósmyndun, prentun eða á annan

sambærilegan hátt, að hluta eða í heild,

án skriflegs leyfis höfundar og útgefanda.

 

 


Svęši